Ísak Bergmann Jóhannesson skoraði sigurmarkið þegar Köln vann 2:1 dramatískan útisigur á Jahn Regensburg í fyrstu umferð þýska bikarsins í dag.
Regensburg komst yfir á 67. mínútu og leit þá út fyrir að Köln myndi detta úr leik en á sjöttu mínútu í uppbótartíma jafnaði Eric Martel metin fyrir Köln.
Það virtist allt stefna í jafntefli en Ísak tryggði sigurinn aðeins tveimur mínútum síðar með marki af stuttu færi. Markið er hér að neðan.
Köln heldur þannig áfram í keppninni og mætir Mainz í fyrsta leik sínum í þýsku úrvalsdeildinni næsta sunnudag.