Stefán getur ekki hætt að skora – Kolbeinn lagði upp

Stefán Ingi er að gera frábæra hluti í Noregi.
Ljósmynd/Sandefjord

Stefán Ingi Sigurðarson skoraði bæði mörk Sandefjord í 2:2 jafntefli við Kristiansund í norsku úrvalsdeildinni í dag.

Stefán Ingi kom liði sínu í 2:0 með tveimur mörkum á fimm mínútum snemma í seinni hálfleik. Hann er nú kominn með ellefu mörk í deildinni og er þriðji markahæsti leikmaður norsku úrvalsdeildarinnar.

Kristiansund svaraði þó fyrir sig með tveimur mörkum í lokin og tryggði sér stig. Sandefjord er í 6. sæti með 28 stig eftir 18 leiki.

Á vef TV2 í Noregi er að hægt að sjá bæði mörkin hjá Stefáni í leiknum. Fyrra markið og seinna markið.

Viðari Ari Jónsson átti fínan leik fyrir HamHam sem hrósaði sigri gegn Bryne, 1:0, á heimavelli. Viðar Ari lék allan leikinn fyrir HamKam og hefur leikið flesta leiki liðsins á leiktíðinni. HamKam er í 12. sæti með 20 stig.

Í norsku B-deildinni skoraði Hinrik Harðarson fyrir Odds í 2:2 jafntefli við Moss. Hinrik var í byrjunarliðinu og lék þar til lítið var eftir af leiknum en hann kom Odds í 2:0 eftir um klukkutíma leik með skallamarki eftir hornspyrnu, áður en Moss skoraði tvö mörk í lokin. Odds er í 9. sæti deildarinnar. Hægt er að sjá mark Hinriks hérna.

Kolbeinn lagði upp í sigri Gautaborgar

Kolbeinn Þórðarson lét aftur til sín taka með liði Gautaborgar sem lagði AIK að velli, 2:1, í sænsku úrvalsdeildinni.

Kolbeinn var tekinn af velli 71. mínútu en hann lagði upp fyrra mark Gautaborgar rétt fyrir leikhlé. Þetta var fyrsta stoðsending hans á leiktíðinni en hann er kominn með sjö mörk í öllum keppnum. Gautaborg er í 7. sæti með 34 stig.

Þá lék Mikael Neville Anderson allan leikinn fyrir Djurgarden sem gerði 1:1 jafntefli við toppliðið Mjallby. Drjurgarden er í 8. sæti, sex stigum á eftir Gautaborg.

Fyrri frétt

Ísak bjargaði Köln á síðustu stundu – Myndband

Næsta frétt

Fanney Inga aftur í byrjunarliðið