Fanney Inga Birkisdóttir lék sinn fyrsta leik frá því í apríl þegar hún stóð í marki Häcken í 5:0 sigri á Växjö í sænsku úrvalsdeildinni í dag.
Fanney Inga hefur undanfarið þurft að sætta sig við hlutverk varamanns bæði hjá félaginu og íslenska landsliðinu, en í dag fékk hún aftur tækifærið frá fyrstu mínútu og nýtti það vel þegar liðið tryggði sér sannfærandi sigur.
Häcken heldur toppsæti deildarinnar með 33 stig eftir 14 umferðir. Eyrún Embla Hjartardóttir, sem nýlega gekk til liðs við félagið frá Stjörnunni, var ekki í leikmannahópnum að þessu sinni.
Á sama tíma lék María Catharina Ólafsdóttir Gros allan leikinn með Linköping sem tapaði 2:0 fyrir Norrköping, þar sem Sigdís Eva Bárðardóttir kom inn á sem varamaður.