Brann vann 2:1 sigur á Vålerenga í toppbarátunni í norsku úrvalsdeildinni í dag. Diljá Ýr Zomers spilaði seinni hálfleikinn fyrir Brann og Sædís Rún Heiðarsdóttir fékk einnig tækifæri hjá Vålerenga. Sigurinn færir Brann á topp deildarinnar, en Vålerenga er nú í þriðja sæti.
Í Bandaríkjunum gerði Angel City markalaust jafntefli við Utah Royals. Sveindís Jane Jónsdóttir lék allan leikinn og þetta var þriðji leikur hennar fyrir félagið í NWSL-deildinni.
Í Svíþjóð hafði Kristianstad betur gegn Rosengård, 2:1. Alexandra Jóhannsdóttir spilaði allan leikinn fyrir Kristianstad og Ísabella Sara Tryggvadóttir fékk einnig tækifæri með Rosengård.