Norrköping hafði betur gegn Elfsborg, 2:1, í Íslendingaslag í sænsku úrvalsdeildinni í dag en tvö íslensk mörk litu dagsins ljós í þeim leik.
Norrköping komst yfir með marki á 18. mínútu og staðan í hálfleik var 1:0. Ari Sigurpálsson jafnaði metin fyrir Elfsborg á 68. mínútu með góðum skalla af stuttu færi.
Á 77. mínútu fékk Norrköping vítaspyrnu sem Arnór Ingvi Traustason tók og hann skoraði örugglega af vítapunktinum.
Arnór Ingvi lék allan leikinn fyrir Norrköping og Ísak Andri Sigurgeirsson lék þar til lítið var eftir af leiknum. Ari lék fyrstu 80 mínúturnar fyrir Elfsborg. Jónatan Guðni Arnarsson var ónotaður varamaður hjá Norrköping og Júlíus Magnússon var það sömuleiðis hjá Elfsborg.
Norrköping er í 11. sæti deildarinnar með 22 stig á meðan Elfsborg er í 4. sæti með 36 stig.
Frábær leikur hjá Daníel
Daníel Tristan Guðjohnsen lét heldur betur til sín taka í 4:0-stórsigri Malmö á Halmstads.
Daníel Tristan var í byrjunarliði Malmö og skoraði fyrsta mark liðsins á 15. mínútu með frábærum skalla eftir hornspyrnu. Tuttugu mínútum síðar lagði hann upp mark fyrir liðsfélaga sinn.
Arnór Sigurðsson var ónotaður varamaður hjá Malmö og Gísli Eyjólfsson kom ekki við sögu hjá Halmstads.
Malmö er í 3. sæti sænsku úrvalsdeildarinnar með 36 stig. Halmstads er í 12. sæti.
Markið hjá Ara:
Mark Arnórs:
Mark Daníels: