Lið í ensku B-deildinni hafa beint sjónum sínum að Stefáni Inga Sigurðarsyni, framherja norska úrvalsdeildarliðsins Sandefjord. Frá þessu greindi Stian de Wahl, blaðamaður Nettavisen, í norska hlaðvarpinu Mercato á dögunum.
Stefán Ingi hefur átt frábært tímabil með Sandefjord og skorað 15 mörk í 26 deildarleikjum. Frammistaða hans hefur vakið athygli víða og var hann meðal annars orðaður við sænska liðið Djurgården í sumar.
Lið í Hollandi og Póllandi hafa einnig verið sögð hafa áhuga á íslenska framherjanum, sem hefur raðað inn mörkum og verið meðal markahæstu leikmanna norsku úrvalsdeildarinnar á tímabilinu.
Lokaumferð norsku úrvalsdeildarinnar fer fram í dag þar sem Sandefjord mun mæta KFUM á heimavelli sínum.