Álasund í úrslitaleik eftir dramatískan sigur

Álasund leikur til úrslita um laust sæti í norsku úrvalsdeildinni.
Ljósmynd/Álasund

Álasund tryggði sér í dag sæti í úrslitaleik umspilsins um laust sæti í norsku úrvalsdeildinni með því að vinna drama­tísk­an sig­ur á Kongsvinger, 5:4, þar sem úrslitin réðust í framlengingu.

Íslendingarnir tveir í liði Álasunds hófu leik á varamannabekknum. Davíð Snær Jóhannsson kom inn á þegar um tuttugu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma og Ólafur Guðmundsson bættist við undir lok framlengingar.

Álasund hélt forystu í leiknum lengst af og var 3:2 yfir í hálfleik. Liðið bætti við marki í upphafi seinni hálfleiks en Kongsvinger jafnaði metin þegar líða tók á leikinn og tryggði sér framlengingu.

Í framlengingunni hafði Álasund betur og tryggði sér þar með sæti í úrslitaleiknum þar sem liðið mætir Bryne. Bryne endaði í 14. sæti úrvalsdeildarinnar á tímabilinu og þarf nú að verja stöðu sína gegn Álasundi.

Fyrri frétt

Stefán Ingi til Englands?

Næsta frétt

Hilmir norsk­ur meistari með Viking