Hilmir norsk­ur meistari með Viking

Hilmir Rafn varð í dag norskur meistari með liði sínu Viking.
Ljósmynd/Viking

Viking frá Stavanger tryggði sér í dag norska meistaratitilinn í fyrsta sinn í 34 ár með sannfærandi 5:1 sigri á Vålerenga í lokaumferð norsku úrvalsdeildarinnar. Með sigrinum hélt liðið naumri forystu á ríkjandi meisturunum Bodø/Glimt.

Hilmir Rafn Mikaelsson, leikmaður Viking, er þar með orðinn norskur meistari. Hann var á varamannabekknum í leiknum en hann lék 12 deildarleiki á tímabilinu og skoraði í þeim tvö mörk.

Titillinn er stór áfangi fyrir Viking sem hefur lengi stefnt að því að endurheimta stöðu sína meðal sterkustu liða Noregs.

Brann, sem Freyr Alexandersson stýrir, endaði tímabilið á 3:1 sigri gegn HamKam. Eggert Aron Guðmundsson og Sævar Atli Magnússon voru báðir fjarverandi hjá Brann vegna meiðsla. Viðar Ari Jónsson lék allan leikinn fyrir HamKam. Brann lauk tímabilinu í 4. sæti, einu stigi á eftir Tromsø sem hirti Evrópudeildarsætið. Brann þarf því að sætta sig við umspilssæti í Sambandsdeildinni. HamKam endaði í 11. sæti.

Stefán Ingi Sigurðarson lék í 78 mínútur í 2:0 sigri Sandefjord á KFUM. Sandefjord lauk keppni í 5. sæti og Stefán tryggði sér bronsskóinn með 15 mörkum í deildinni.

Fyrri frétt

Álasund í úrslitaleik eftir dramatískan sigur

Næsta frétt

Hélt hreinu í rótbursti – Viktor lék í hálftíma