Sonur Dagnýjar fékk treyjuna frá Hákoni

Brynjar Atli, sonur Dagnýjar Brynjarsdóttur, fékk treyju Hákons eftir leik við West Ham.
Ljósmynd/Instagram

Hákon Arnar Haraldsson lék frá byrjun þegar lið hans Lille mætti West Ham í æfingaleik á Ólympíuleikvanginum í London um síðustu helgi. Hann lagði upp mark fyrir Olivier Giroud sem kom Frökkunum yfir, en heimamenn jöfnuðu í síðari hálfleik og lauk leiknum 1:1. Í vítakeppni skoraði Hákon úr sínu víti, þó West Ham hafi unnið 5:4.

Eftir leikinn fór Hákon til stúkunnar þar sem Dagný Brynjarsdóttir og sonur hennar, Brynjar Atli, voru á meðal áhorfenda. Hákon afhenti Brynjari treyjuna sem hann hafði leikið í.

Dagný deildi myndum af gjöfinni á Instagram og skrifaði: „MVP Hákon Haraldsson. Takk svo mikið.“

Hákon er að hefja sitt þriðja tímabil með Lille og hefur þegar leikið 22 A-landsleiki fyrir Ísland.

Fyrri frétt

Guðlaugur Victor lagði aftur upp – Myndband

Næsta frétt

Eyrún Embla til Häcken