Guðlaugur Victor lagði aftur upp – Myndband

Guðlaugur Victor lagði upp í sigri Plymouth í enska deildabikarnum.
Ljósmynd/Plymouth

Guðlaugur Victor Pálsson, fyrirliði Plymouth, lék allan leikinn í 3:2 sigri á QPR á heimavelli í 1. um­ferð enska deilda­bik­ars­ins í gærkvöld. Hann átti stóran þátt í endurkomu liðsins eftir að hafa verið tveimur mörkum undir í fyrri hálfleik.

Guðlaugur Victor skallaði boltann fyrir Brendan Wiredu sem minnkaði muninn, áður en heimamenn skoruðu tvö mörk til viðbótar og tryggðu sér sigurinn.

Guðlaugur Victor er nú kominn með tvær stoðsendingar á leiktíðinni eftir aðeins þrjá leiki en hann lagði einnig upp um þarsíðustu helgi þegar Plymouth hóf leik í ensku C-deildinni.

Stefán Teitur Þórðarson var í byrjunarliði Preston og spilaði allar mínúturnar í 1:0 útisigri á Barrow.

Benoný Breki Andrésson lék ekki fyrir Stockport vegna meiðsla í 3:1 sigri liðsins á Crewe. Jason Daði Svanþórsson er einnig frá vegna meiðsla hjá Grimsby sem lagði Shrewsbury að velli, 3:1.

Fyrri frétt

Lech Pozn­an í umspil Evrópudeildar

Næsta frétt

Sonur Dagnýjar fékk treyjuna frá Hákoni