Gísli Gottskálk Þórðarson og félagar í Lech Poznan náðu ekki að snúa við stöðunni gegn Rauðu stjörnunni í þriðju umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Liðin mættust í Belgrad í gærkvöld og lauk leiknum með 1:1 jafntefli, en Serbarnir höfðu unnið fyrri viðureignina 3:1 í Póllandi og tryggðu sér áframhald með samanlögðum 4:2 sigri.
Rauða stjarnan komst yfir úr vítaspyrnu rétt fyrir hálfleik og þar með þurfti Poznan að skora þrjú mörk til að komast áfram. Sænski framherjinn Mikael Ishak jafnaði metin undir lok leiks, en það dugði ekki til að breyta úrslitunum.
Gísli var í byrjunarliði Poznan og lék allan fyrri hálfleikinn áður en hann fór af velli í hálfleik. Poznan, sem sló Breiðablik úr leik í umferðinni á undan, heldur nú áfram í umspil Evrópudeildarinnar þar sem liðið mætir Genk frá Belgíu 21. og 28. ágúst.
Rúnar Alex Rúnarsson fylgdist með frá varamannabekknum þegar FC Kaupmannahöfn tryggði sér sæti í umspili Meistaradeildarinnar með 5:0 sigri á Malmö í gærkvöld.
Hjá Malmö kom Daníel Tristan Guðjohnsen inn á 80. mínútu en Arnór Sigurðsson sat allan leikinn á bekknum. Malmö fer í umspil Evrópudeildarinnar eftir úrslitin.