Guðlaugur Victor Pálsson var fyrirliði Plymouth Argyle í dag þegar liðið mætti Barnsley í fyrstu umferð ensku C-deildarinnar. Leikið var á heimavelli Plymouth, Home Park, og lauk leiknum með 3:1 sigri gestanna.
Barnsley komst í 2:0 í fyrri hálfleik, en Guðlaugur lagði upp mark fyrir Caleb Watts í síðari hálfleik þegar Plymouth minnkaði muninn. Vonir heimamanna dvínuðu þó þegar Barnsley innsiglaði sigurinn með þriðja markinu undir lok leiks.
Stoðsendingu Guðlaugs má sjá hér að neðan.