Hákon Arnar Haraldsson skoraði laglegt mark fyrir Lille í æfingaleik gegn Borussia Dortmund í dag, sem endaði með 3:2 sigri þýska liðsins.
Markið hjá Hákoni kom í síðari hálfleik þegar hann náði að brjótast í gegnum vörn Dortmund og kláraði færið af miklu öryggi með föstu skoti í hægra neðra hornið.
Markið kom á mikilvægu augnabliki þar sem franska liðið reyndi að snúa leiknum sér í hag, en Dortmund svaraði fljótt og hélt forskotinu út leikinn.
Fyrsti leikur Lille í frönsku úrvalsdeildinni er þann 17. ágúst þegar liðið fer í heimsókn til Brest.
Haraldsson tem potencial enorme pois ele é bom de duas formas. Ele gosta da bola, de construir, de aproximar com os companheiros longe do gol.
Ao mesmo tempo ele é insano no desmarque. Quando não tem a bola é movimento constante, um motor que nunca para. Ele marca gols por isso. pic.twitter.com/1bhjXpqmJP
— Paulo Lima 🇵🇸 (@p4ulolim4) August 2, 2025