Eggert Aron Guðmundsson lét vel að sér kveða þegar lið hans Brann sigraði Sarpsborg, 4:1, í norsku úrvalsdeildinni í dag.
Eggert Aron lagði upp fyrsta markið hjá Brann á 42. mínútu og skoraði síðan sjálfur fjórða mark liðsins á 84. mínútu, en hann lék fyrstu 87 mínúturnar í leiknum.
Sævar Atli Magnússon lék allan leikinn fyrir Brann og Freyr Alexandersson stýrir liðinu. Sveinn Aron Guðjohnsen sat allan tímann á varamannabekknum hjá Sarpsborg.
Brann er í 3. sæti deildarinnar með 33 stig eftir 17 leiki. Sarpsborg er í 8. sæti með 22 stig.
Markið hjá Eggerti má sjá hér.