Eyrún Embla til Häcken

Eyrún Embla hefur yfirgefið Stjörnuna og samið við BK Häcken í Svíþjóð.
Ljósmynd/Stjarnan

Varnarmaðurinn Eyrún Embla Hjartardóttir hefur yfirgefið Stjörnuna og samið við BK Häcken, topplið sænsku úrvalsdeildarinnar.

Eyrún, sem er 20 ára og uppalin á Snæfellsnesi, kom til Stjörnunnar árið 2021 frá Víkingi Ólafsvík. Hún hefur leikið 51 leik í efstu deild og á að baki 30 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands þar sem hún hefur skorað eitt mark.

Häcken trónir á toppi sænsku deildarinnar með 30 stig eftir 13 umferðir. Þar leikur einnig landsliðsmarkvörðurinn Fanney Inga Birkisdóttir. Næsti leik­ur liðsins er við Bryn­dísi Örnu Ní­els­dótt­ur og stöll­ur í Växjö þann 17. ág­úst. 

Fyrri frétt

Sonur Dagnýjar fékk treyjuna frá Hákoni

Næsta frétt

Willum lagði upp sigurmark Birmingham – Myndband