Willum lagði upp sigurmark Birmingham – Myndband

Willum Þór lagði upp sigurmarkið í enska deildabikarnum.
Ljósmynd/Birmingham

Birmingham er komið áfram í 2. umferð enska deildabikarsins eftir 2:1-heimasigur á Sheffield United í kvöld.

Willum Þór Willumsson lék allan leikinn fyrir heimamenn og átti stoðsendinguna í sigurmarkinu sem Jay Stansfield skoraði á 87. mínútu leiksins.

Alfons Sampsted var ekki í leikmannahópi Birmingham og er búist við að hann yfirgefi liðið á næstunni.

Í næstu umferð tekur Birmingham á móti C-deildarliðinu Port Vale. Birmingham hóf keppni í ensku B-deildinni síðasta föstudag og gerði 1:1 jafntefli við Ipswich í 1. umferðinni.

Fyrri frétt

Eyrún Embla til Häcken

Næsta frétt

Davíð Snær með þrennu í stoðsendingum – Mikael opnaði markareikinginn