Davíð Snær með þrennu í stoðsendingum – Mikael opnaði markareikinginn

Davíð Snær var í stóru hlutverki hjá Álasund og Mikael opnaði markareikninginn í Svíþjóð.
Ljósmynd/Aalesund

Davíð Snær Jóhannsson var í stóru hlutverki þegar Álasund tryggði sér sæti í næstu umferð norska bikarsins í gær. Hann lagði upp þrjú af fjórum mörkum liðsins í 4:1 endurkomusigri á Traeff, þrátt fyrir að liðið hefði lent undir snemma leiks.

Odd, með Hinrik Harðarson í byrjunarliðinu, vann 3:1 sigur á Pors og fór einnig áfram.

Í sænska bikarnum skoraði Mikael Anderson sitt fyrsta mark í Svíþjóð þegar hann kom Djurgården í 2:1 úr vítaspyrnu á 68. mínútu, skömmu eftir að hafa komið inn á sem varamaður.

Djurgården vann að lokum sannfærandi 4:1 sigur og er komið áfram í keppninni. Mikael gekk til liðs við félagið frá AGF í Danmörku í sumar.

Fyrri frétt

Willum lagði upp sigurmark Birmingham – Myndband

Næsta frétt

Oliver yfirgefur ÍBV eftir tímabilið – Fer til Króatíu