Sneri aft­ur eft­ir meiðsli

Benoný Breki sneri aft­ur á völl­inn eftir meiðsli.
Ljósmynd/Stockport

Benoný Breki Andrés­son, leikmaður Stockport County, sneri aft­ur á völl­inn eft­ir meiðsli í tapi liðsins gegn Bradford, 2:1, í ensku C-deildinni í kvöld.

Benoný var annan deildarleikinn í röð á varamannabekknum hjá Stockport en kom að þessu sinni við sögu á 73. mínútu. Benóný skoraði seint í leiknum en markið var dæmt af.

Stockport er í 8. sæti deildarinnar með 7 stig eftir fyrstu fjóra leikina í C-deildinni en Benoný missti af fyrstu leikjum tímabilsins vegna meiðsla.

Á sama tíma í sömu deild var Guðlaugur Victor Pálsson settur á varamannabekkinn hjá Plymouth sem tapaði 1:0 gegn Leyton Orient. Plymouth byrjar tímabilið illa og er án stiga, en lið lék á síðasta tímabili í ensku B-deildinni.

Þá var Jason Daði Svanþórsson fjarverandi vegna meiðsla hjá Grimsby sem sigraði Walsall, 1:0, í ensku D-deildinni.

Fyrri frétt

Norrköping fór áfram

Næsta frétt

Diljá skoraði fyrsta markið sitt fyrir Brann – Myndband