Diljá Ýr Zomers opnaði markareikning sinn með Brann í norsku úrvalsdeildinni í dag þegar hún skoraði í 2:0-sigri á Kolbotn.
Framherjinn Brenna Lovera kom Brann yfir snemma leiks en Diljá Ýr tryggði sigurinn með marki á 68. mínútu. Hún lék allan leikinn og hefur nú bæði skorað og lagt upp mark í tveimur byrjunarliðsleikjum sínum fyrir liðið.
Brann er áfram á toppi deildarinnar með 47 stig, fjórum stigum á undan Vålerenga sem vann 3:1 sigur á Lilleström. Þar byrjaði Sædís Rún Heiðarsdóttir en var tekin af velli eftir rúman klukkutíma.
Markið hjá Diljá: