Júlíus Magnússon skoraði eina mark leiksins þegar Elfsborg lagði Haninge að velli, 1:0, í 2. umferð sænsku bikarkeppninnar í kvöld. Markið kom á 44. mínútu og dugði til að tryggja Elfsborg sæti í riðlakeppni bikarsins sem hefst í byrjun næsta árs.
Júlíus lék allan leikinn á miðjunni en Ari Sigurpálsson var einnig í byrjunarliðinu og lék í rúman klukkutíma.
Í Danmörku missti Kolding frá sér tveggja marka forystu í 2:2 jafntefli við Aarhus Fremad í B-deildinni. Isak Tannander skoraði bæði mörk Kolding en heimamenn jöfnuðu með tveimur mörkum á lokakaflanum. Ari Leifsson og Jóhannes Kristinn Bjarnason hófu leikinn á bekknum, en sá síðarnefndi kom inn á sem varamaður á 69. mínútu. Kolding er í 3. sæti með 10 stig eftir sex leiki.
Þá vann AB 1:0 útisigur á Ishoj í C-deildinni. Adam Ingi Benediktsson og Ægir Jarl Jónasson voru í byrjunarliðinu og Jóhannes Karl Guðjónsson stýrði liðinu til sigurs. AB er komið með sex stig eftir þrjár umferðir og situr í 5. sæti.
Kolbeinn Þórðarson var ekki með Gautaborg sem hafði betur gegn Qviding, 4:0.