Valgeir Lunddal Friðriksson, leikmaður Fortuna Düsseldorf, fær í dag mikið lof í þýska dagblaðinu Rheinische Post fyrir frammistöðu sína í þýsku bikarkeppninni síðasta mánudag. Þar var hann sagður hafa komið sterkur inn í seinni hálfleik og lagt sitt af mörkum til að snúa leiknum við.
Fortuna Düsseldorf vann þá 4:2 endurkomusigur gegn Schweinfurt eftir að hafa verið 1:0 undir í hálfleik. Valgeir kom inn á í byrjun seinni hálfleiks og lagði upp jöfnunarmarkið fyrir samherja sinn um miðbik seinni hálfleiks.
Í grein Rheinische Post var tekið fram að Valgeir hafi sýnt bæði baráttu og áræðni, auk þess að skila liði sínu mikilvægu framlagi í sóknarleiknum. Honum var lýst sem leikmanni sem væri að uppskera eftir markvissa vinnu og gæti með stöðugleika náð enn lengra.
Fortuna Düsseldorf leikur í þýsku B-deildinni og endaði í 6. sæti á síðasta tímabili en Valgeir kom þá við sögu í 23 leikjum, þar af var hann 16 sinnum í byrjunarliðinu.
Stoðsending Valgeirs: