Norrköping fór áfram

Norrköping tryggði sér í kvöld sæti í riðlakeppni sænska bikarsins.
Ljósmynd/NT

Norrköping tryggði sér í kvöld sæti í riðlakeppni sænska bikarsins eftir öruggan 3:0-útisigur á Viggbyholm í undankeppninni.

Ísak Andri Sigurgeirsson og Jónatan Guðni Arnarsson voru báðir í byrjunarliði Norrköping en Arnór Ingvi Traustason kom inn á undir lok fyrri hálfleiks. Þeir Íslendingarnir komust ekki á blað í leiknum en liðið hélt þó áfram góðu gengi í bikarnum þrátt fyrir erfiða stöðu í sænsku úrvalsdeildinni þar sem það er í 11. sæti.

Í Danmörku fékk Ísak Snær Þorvaldsson tækifæri með Lyngby þegar hann kom inn á sem varamaður á 56. mínútu í tapi liðsins, 2:1, gegn Hillerød í B-deild. Lyngby er í 3. sæti eftir sex umferðir.

Síðan mættust Esbjerg og Álaborg. Breki Baldursson sat allan leikinn á bekknum hjá Esbjerg en Nóel Atli Arnórsson fékk nokkrar mínútur fyrir Álaborg þegar hann kom inn á sem varamaður á 85. mínútu. Esbjerg fór með sigur af hólmi, 1:0.

Í Grikklandi var Hjörtur Hermannsson í byrjunarliði Volos sem vann sannfærandi 4:0 sigur á Giannina í bikarkeppni þar í landi.

Fyrri frétt

Gunnar og Viktor skoruðu í fyrsta leik tímabilsins

Næsta frétt

Sneri aft­ur eft­ir meiðsli