Hilmir Rafn Mikaelsson skoraði tvö mörk fyrir Viking í 7:0-stórsigri liðsins gegn Koper frá Slóveníu á heimavelli í fyrri leik liðanna í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar í kvöld.
Hilmir Rafn lék allan leikinn fyrir Viking og gerði fimmta og sjötta mark liðsins. Hann skoraði úr vítaspyrnu á 78. mínútu og sjö mínútum síðar skoraði hann með föstu skoti innan teigs.
Kolbeinn Birgir Finnsson var allan tímann á varamannabekknum hjá Utrech þegar liðið vann 3:1 sigur á Sheriff frá Moldóvu. Þá kom Elías Rafn Ólafsson sömuleiðis ekki við sögu hjá Midtjylland sem gerði 1:1 jafntefli við Hiberian.