Hilmir Rafn Mikaelsson skoraði tvö mörk fyrir Viking frá Stavanger í gærkvöldi þegar liðið vann stórsigur á Koper frá Slóveníu, 7:0, á heimavelli í fyrri leik liðanna í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar.
Hilmir Rafn gerði fimmta og sjötta mark Viking í leiknum. Hann skoraði úr vítaspyrnu á 78. mínútu og sjö mínútum síðar skoraði hann með föstu skoti innan teigs, en mörkin eru hér að neðan.