Hólmbert á leið til Suður-Kóreu

Hólmbert Aron er að ganga í raðir liðsins Gwangju FC í Suður-Kóreu.
Ljósmynd/Kicker

Hólmbert Aron Friðjónsson er að ganga í raðir liðsins Gwangju FC í Suður-Kóreu, samkvæmt 433.is í dag.

Hólmbert, sem er 32 ára, yfirgaf þýska B-deildarliðið Pr­eus­sen Mün­ster fyrir tveimur mánuðum. Hann lék með liðinu á síðustu leiktíð, þar sem hann skoraði þrjú mörk í 23 leikjum.

Gwangju leikur í efstu deild í Suður-Kóreu og endaði í níunda sæti deildarinnar á síðustu leiktíð, en á þessari leiktíð er liðið í sjötta sæti eftir 23 umferðir.

Fram­herj­inn stæðilegi hef­ur komið víða við á atvinnumannaferl­i sínum og at­hygl­is­vert verður að fylgj­ast með honum í Suður-Kóreu. Hólm­bert hefur leikið sex A-lands­leiki og hef­ur skorað í þeim tvö mörk.

Fyrri frétt

Sævar skoraði eina mark Brann – Myndband

Næsta frétt

Hilmir skoraði tvö í stórsigri Viking