Sandra María Jessen hefur gengið í raðir þýska úrvalsdeildarliðsins 1. FC Köln. Þór/KA greindi frá samkomulaginu í tilkynningu sinni í dag.
Í tilkynningu liðsins segir að Sandra María hafi því spilað sinn síðasta leik fyrir Þór/KA í bili. Jafnframt eru henni færðar bestu þakkir fyrir ómetanlegt framlag til liðsins, félagsins og knattspyrnunnar á Akureyri.
Þrítuga sóknarkonan hefur verið lykilleikmaður í Bestu deildinni undanfarin ár. Hún varð markadrottning á síðasta tímabili með 22 mörk í 23 leikjum og hefur skorað tíu mörk í 14 leikjum í sumar.
Sandra María hefur áður leikið með Bayer Leverkusen og Slavia Prag erlendis en annars varið sínum ferli hér heima með Þór/KA. Hún á að baki 57 landsleiki og sjö mörk fyrir íslenska landsliðið.