Freyr Alexandersson, þjálfari Brann í Noregi, var ekki lengi að beina athyglinni frá sjálfum sér eftir að liðið tryggði sér sæti í deildarkeppni Evrópudeildarinnar. Á blaðamannafundi eftir 4:0 sigur á AEK Larnaca nýtti hann tækifærið til að hrósa samstarfsfólki sínu.
„Núna fæ ég mikið hrós, ég verð kallaður kóngurinn í Bergen, en sannleikurinn er sá að þjálfarateymið mitt er algjörlega frábært,“ sagði Freyr og barði í borðið til að leggja áherslu á orð sín. „Þeir eru ótrúlega færir. Ég vil nýta þá þannig að þeir geti verið besta útgáfan af sjálfum sér.“
Freyr sagðist veita öllum í teyminu mikla ábyrgð og treysta þeim fyrir stórum hlutverkum. Hann bætti við að öflugt samstarf innan liðsins hefði verið lykilatriðið, bæði með farsælum leikmannakaupum í sumar og með því að styrkja breiddina í leikmannahópnum. „Ég hef alltaf sagt að við verðum bestir á haustin og það hefst eftir tvær vikur,“ sagði hann ákveðinn.
Freyr tók jafnframt fram að árangurinn í Evrópu væri aðeins hluti af verkefninu. Liðið þyrfti einnig að halda dampi í norsku úrvalsdeildinni og tryggja sér sæti í toppbaráttunni. „Það er frábært að vera í Evrópu, en ef við endum ekki í efstu fjóru sætunum þá verð ég ekki sáttur,“ sagði hann.