Blackburn reynir að fá Andra Lucas

Blackburn Rovers vinnur nú að því að fá Andra Lucas frá belgíska liðinu Gent.
Ljósmynd/Gent

Blackburn Rovers í ensku B-deildinni vinnur nú að því að fá Andra Lucas Guðjohnsen frá belgíska liðinu Gent. Það er blaðamaðurinn Alan Nixon sem greinir frá þessu á vefsvæði sínu í dag.

Blackburn vill styrkja framlínuna sína áður en félagaskiptaglugginn lokar og hefur beint sjónum sínum að íslenska framherjanum.

Andri Lucas, sem er 23 ára gamall, hefur áður verið orðaður við félagaskipti til annarra liða í Evrópu en Blackburn virðist nú vera líklegasti áfangastaðurinn. Ef af samningnum verður gæti hann tekið næsta skref á ferlinum og fengið tækifæri í einni erfiðustu deild Evrópu.

Andri Lucas gekk til liðs við Gent á síðasta ári og hefur spilað 46 leiki fyrir liðið. Hann hefur skorað fimm mörk og lagt upp tvö. Belgíska liðið greiddi um eina milljón punda fyrir hann á sínum tíma og nú er talið að sú fjárhæð nægi til að losa hann frá belgíska liðinu.

Fyrri frétt

Al­bert og fé­lag­ar í Sambandsdeildina

Næsta frétt

Sandra til liðs við Köln