Albert Guðmundsson kom inn á í upphafi seinni hálfleiks þegar Fiorentina tryggði sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar í kvöld.
Fiorentina hafði unnið fyrri leikinn gegn Polissya Zhytomyr 3:0 á útivelli, en í Flórens lenti liðið í vandræðum í upphafi leiks og var tveimur mörkum undir eftir aðeins korter.
Með Albert inn á náði Fiorentina að snúa leiknum sér í vil og vann að lokum 3:2 sigur. Samtals fór einvígið 6:2 og er Fiorentina því komið áfram í aðalkeppnina.
Guðmundur Þórarinsson var ónotaður varamaður þegar lið hans Noah vann 3:2 sigur gegn Olimpija Ljubljana í seinni leik liðanna. Noah vann einvígið samanlagt 7:3 og er líkt og Fiorentina komið áfram.