Daníel Tristan skoraði – Elías hélt hreinu

Daníel Tristan skoraði í umspili Evrópudeildarinnar og Elías Rafn hélt hreinu hjá Midtjylland.
Ljósmynd/svenskfotboll.se

Daníel Tristan fagnaði landsliðsvalinu með marki

Daníel Tristan Guðjohnsen skoraði fyrrra mark Malmö í 2:0 sigri liðsins á Sigma Olomouc í Tékklandi í kvöld í umspili Evrópudeildarinnar. Með sigrinum tryggði sænska liðið sér sæti í riðlakeppninni, 5:0 samanlagt.

Framherjinn ungi var í byrjunarliðinu og kom Malmö yfir á 62. mínútu. Þetta var fyrsta mark hans í Evrópukeppni og þriðja mark hans á leiktíðinni. Daníel Tristan, sem í gær var í fyrsta sinn valinn í A-landsliðið, hefur verið í byrjunarliðinu hjá Malmö í undanförnum leikjum og fest sig þar í sessi.

Elías Rafn hélt hreinu í fjórða sinn í fimm leikjum

Elías Rafn Ólafsson hélt enn og aftur hreinu þegar Midtjylland vann 2:0 útisigur á KuPS í Finnlandi. Fyrri leikurinn endaði með 4:0 sigri Midtjylland og lauk einvíginu því með öruggum sigri danska liðsins, 6:0 samanlagt.

Elías Rafn varði fimm skot í leiknum og sýndi aftur hvers vegna hann hefur tryggt sér stöðu sem aðalmarkvörður liðsins. Hann hefur nú haldið hreinu í fjórum af síðustu fimm leikjum sínum.

Logi lék allan leikinn og Gísli kom inn á

Logi Tómasson spilaði allan leikinn með Samsunspor í markalausu jafntefli gegn Panathinaikos í Tyrklandi. Sverrir Ingi Ingason sat allan tímann á varamannabekknum hjá gríska liðinu.

Panathinaikos fer áfram í Evrópudeildina eftir samanlagðan 2:1 sigur en Samsunspor heldur keppni sinni áfram í Sambandsdeildinni.

Þá kom Gísli Gottskálk Þórðarson inn á sem varamaður í upphafi seinni hálfleiks hjá Lech Poznan sem vann 2:1-útisigur á Genk í Belgíu. Genk vann fyrri leikinn 5:1 og einvígið samanlagt 6:3. Lech Poznan færist þar með yfir í Sambandsdeildina.

Fyrri frétt

Ísak Andri á óskalista Hammarby

Næsta frétt

Al­bert og fé­lag­ar í Sambandsdeildina