Sævar skoraði tvö í svekkjandi jafntefli

Sævar Atli skoraði bæði mörk Brann þegar liðið gerði svekkjandi jafntefli.
Ljósmynd/Brann

Sævar Atli Magnússon skoraði bæði mörk Brann þegar liðið gerði svekkjandi 2:2 jafntefli gegn Kristiansund í norsku úrvalsdeildinni í dag.

Leikurinn var markalaus í hálfleik, en á örfáum mínútum í seinni hálfleik kom Sævar liði sínu í þægilega stöðu. Fyrra markið kom á 67. mínútu þegar hann af­greiddi bolt­ann virki­lega vel í netið af stuttu færi eftir góða sendingu frá samherja sínum. Tveimur mínútum síðar tvöfaldaði Sævar forystuna með marki úr vítaspyrnu.

Brann missti hins vegar tökin á lokakaflanum. Kristiansund minnkaði muninn þegar um fimmtán mínútur voru eftir og jafnaði metin á 89. mínútu. Þar með þurfti Brann að sætta sig við aðeins eitt stig.

Úrslitin teljast vonbrigði þar sem Brann missti af tækifæri til að þrýsta á toppliðin. Liðið, stýrt af Frey Alexanderssyni, er í þriðja sæti með 37 stig, fimm stigum á eftir Bodø/Glimt og Viking.

Sævar Atli hefur þó byrjað tímabilið af miklum krafti og er kominn með fjögur mörk í fyrstu fimm deildarleikjum sínum. Hann var í byrjunarliðinu ásamt Eggerti Aroni Guðmundssyni, sem lék vel en fór af velli undir lok leiksins þegar staðan var 2:1.

Mörk Sævars í leiknum er að finna á vef TV2 í Noregi:

Fyrra markið

Seinna markið

Fyrri frétt

Kristall aftur á skotskónum

Næsta frétt

Mikael byrjar gegn Juventus