Mikael Egill Ellertsson er í byrjunarliði Genoa sem mætir stórliðinu Juventus í 2. umferð ítölsku A-deildarinnar í dag. Leikurinn fer fram á heimavelli Genoa og hefst klukkan 16:30.
Mikael lék sem varamaður í fyrstu umferðinni þegar Genoa gerði markalaust jafntefli við Lecce, en fær nú tækifæri til að byrja leikinn gegn einu stærsta liði landsins. Genoa endaði í 13. sæti deildarinnar á síðasta tímabili og er stýrt af Patrick Vieira, fyrrverandi leikmanni Juventus.
Albert Guðmundsson er einnig í byrjunarliði Fiorentina sem fer í heimsókn til Torino. Fiorentina gerði jafntefli við Cagliari í fyrstu umferðinni.
Mikael og Albert eru á meðal þeirra sem Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, valdi nýverið í landsliðshópinn fyrir leiki gegn Aserbaídsjan og Frakklandi í undankeppni HM 2026.