Annað jafn­tefli Fiorentina í röð

Albert og samherjar hans í Fiorentina gerðu annað jafnteflið í röð.
Ljósmynd/Fiorentina

Albert Guðmundsson og samherjar hans í Fiorentina gerðu annað jafnteflið í röð gegn Torino á útivelli í 2. umferð ítölsku A-deildarinnar í dag.

Ekkert mark leit dagsins ljós í leiknum og Albert lék fyrstu 83. mínúturnar áður en hann fór út af. Fiorentina var talsvert sterkari aðilinn og átti 16 marktilraunir á móti 7 hjá Torino, en það dugði skammt.

Mikael Egill Ellertsson var í byrjunarliði Genoa sem tók á móti stórliðinu Juventus. Dusan Vlahovic skoraði eina mark leiksins á 73. mínútu og Mikael Egill var tekinn af velli fjórum mínútum síðar. Genoa gerði jafntefli í fyrstu umferð og er því með eitt stig.

Í pólsku úrvalsdeildinni lék Gísli Gottskálk Þórðarson síðasta hálftímann fyrir Lech Poznan sem hafði betur gegn Widzem Lodz, 2:1. Lech Poznan er í 6. sæti eftir fimm leiki en á þó tvo leiki til góða á liðin sem eru í sætunum fyrir ofan.

Fyrri frétt

Mikael byrjar gegn Juventus

Næsta frétt

Mörkin tvö hjá Sævari – Myndband