Mörkin tvö hjá Sævari – Myndband

Sævar Atli skoraði tvö mörk fyrir Brann í svekkjandi jafntefli liðsins.
Ljósmynd/Bergensavisen

Sævar Atli Magnússon skoraði tvö mörk fyrir Brann í 2:2 jafntefli gegn Kristiansund í norsku úrvalsdeildinni í dag.

Leikurinn var markalaus í hálfleik en á tveimur mínútum í síðari hálfleik kom Sævar liði sínu í 2:0. Hann skoraði fyrst af stuttu færi á 67. mínútu og bætti við marki úr vítaspyrnu tveimur mínútum síðar. Kristiansund svaraði á lokakaflanum, minnkaði muninn á 75. mínútu og jafnaði á 89. mínútu.

Sævar er kominn með fjögur mörk í fyrstu fimm deildarleikjum sínum með Brann. Hér að neðan má sjá mörkin hans í leiknum í dag.

Fyrri frétt

Annað jafn­tefli Fiorentina í röð

Næsta frétt

Mikael fékk hrós frá Viera