Mikael fékk hrós frá Viera

Mikael fékk hrós frá Patrick Vieira og var lofaður í ítölskum fjölmiðlum fyr­ir frammistöðu sína gegn Juventus.
Ljósmynd/Genoa

Mikael Egill Ellertsson var í byrjunarliði Genoa þegar liðið tók á móti Juventus í 2. umferð ítölsku A-deildarinnar í dag. Gestirnir fóru með sigur af hólmi, 1:0, með marki Dusan Vlahovic á 73. mínútu. Mikael var tekinn af velli fjórum mínútum síðar.

Patrick Vieira, stjóri Genoa, var þó ánægður með framlag íslenska landsliðsmannsins þrátt fyrir tapið. „Ellertsson lék vel, við þurfum að halda áfram að vinna með þetta hugarfar. Við sýndum persónuleika, hugrekki og áræðni og það er nákvæmlega þessi leikstíll sem við þurfum að byggja á,“ sagði hann eftir leikinn.

Hann bætti því við að það hafi verið svekkjandi að fá á sig mark þegar liðið var manni færra. Þar átti hann við atvik þegar Mikael hafði þurft að fá aðhlynningu og dómari leiksins veitti honum ekki strax leyfi til að snúa aftur inn á völlinn.

Í ítölsku fjölmiðlunum fékk Mikael einnig lof. Calciomercato gaf honum einkunnina 7 og skrifaði: „Ellertsson setti Joao Mario í vandræði, var sífellt á ferðinni á hægri kantinum og hættulegasti leikmaður Genoa.“

Genoa er með eitt stig eftir fyrstu tvær umferðirnar, en liðið gerði jafntefli við Lecce í opnunarleiknum.

Fyrri frétt

Mörkin tvö hjá Sævari – Myndband

Næsta frétt

Birkir legg­ur skóna á hill­una