Birkir legg­ur skóna á hill­una

Birkir Bjarnason hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna.
Ljósmynd/Instagram

Birkir Bjarnason, leikjahæsti leikmaður í sögu íslenska karlalandsliðsins, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Hann greindi frá ákvörðuninni á Instagram-síðu sinni í dag og sagði hana hafa verið erfiða.

Birkir lék 113 landsleiki á árunum 2010 til 2022 og skoraði 15 mörk. Hann skrifaði sig í sögubækurnar á EM 2016 þegar hann skoraði fyrsta mark Íslands á stórmóti í jafntefli gegn Portúgal. Hann var lykilmaður í gullaldarárum landsliðsins og spilaði alla átta leiki liðsins á EM 2016 og HM 2018.

Á löngum og farsælum atvinnumannaferli lék hann með liðum í sjö löndum, meðal annars Viking í Noregi, Standard Liège í Belgíu, Sampdoria og Pescara á Ítalíu, Basel í Sviss og Aston Villa á Englandi. Síðustu árin var hann í Katar og Tyrklandi áður en hann lauk ferlinum með Brescia á Ítalíu.

„Eftir mikla íhugun hef ég ákveðið að hætta í atvinnumennsku í fótbolta. Þetta hefur ekki verið auðveld ákvörðun, en ég tek hana með stolti yfir þeim árangri sem náðst hefur og þakklæti fyrir þau tækifæri, reynslu og minningar sem fótboltinn hefur gefið mér. Þessi reynsla hefur mótað mig á marga vegu og mun fylgja mér áfram næstu kafla lífs míns. Takk fyrir mig!“ skrifaði hann í kveðjufærslu sinni.

 
 
 
 
 
View this post on Instagram
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

A post shared by Birkir Bjarnason (@birkirbjarnason)

Fyrri frétt

Mikael fékk hrós frá Viera

Næsta frétt

Rúnar Þór orðinn leikmaður Sønderjyske