Rúnar Þór orðinn leikmaður Sønderjyske

Rúnar Þór hefur gengið til liðs við danska úrvalsdeildarliðið Sønderjyske.
Ljósmynd/Sønderjyske

Rúnar Þór Sigurgeirsson hefur gengið til liðs við danska úrvalsdeildarliðið Sønderjyske. Hann hefur skrifað undir samning sem gildir til sumarsins 2029 eftir að hafa verið keyptur frá hollenska liðinu Willem II.

Rúnar Þór, sem er 25 ára gamall, hóf feril sinn með Keflavík áður en hann fór til Östers IF í Svíþjóð í byrjun árs 2023. Þaðan hélt hann til Willem II í Hollandi þar sem hann lék síðustu tvö tímabil og spilaði meðal annars í efstu deild á síðasta ári. Hann hefur leikið tvo A-landsleiki fyrir Ísland.

Í tilkynningu félagsins segir Casper Daather, yfirmaður knattspyrnumála Sønderjyske, að hann sé afar ánægður með komu Íslendingsins. „Það hefur verið forgangsverkefni að fá varnarmann til liðsins og Rúnar Þór hefur lengi verið ofarlega á listanum hjá okkur. Hann kemur með réttu gildin úr íslenskum fótbolta og hefur aflað sér mikillar reynslu í Svíþjóð og Hollandi. Við fáum leikmann með mikla orku og ástríðu sem passar vel inn í leikstíl okkar.“

Rúnar Þór sjálfur lýsti mikilli ánægju með skiptin. „Það er frábært að hafa skrifað undir hér í Sønderjyske. Það er gott að hafa lokið þessu á síðasta degi félagaskiptagluggans. Ég hef rætt við fólkið í kringum félagið og það kynnti mér spennandi verkefni sem ég hlakka til að taka þátt í. Þetta hefur verið annasamur dagur, en nú er allt komið í höfn og ég hlakka til að hitta nýju samherjana mína,“ sagði hann.

Rúnar Þór er fimmtándi íslenski leikmaðurinn sem gengur í raðir Sønderjyske frá upphafi, en þeir Daníel Leó Grétarsson og Kristall Máni Ingason leika með liðinu.

Fyrri frétt

Birkir legg­ur skóna á hill­una

Næsta frétt

Brynjólfur val­inn leikmaður um­ferðar­inn­ar