Brynjólfur Darri Willumsson heldur áfram að láta að sér kveða með Groningen í hollensku úrvalsdeildinni. Hann skoraði tvö mörk í 4:0 sigri liðsins á Heracles síðastliðið föstudagskvöld og var í kjölfarið útnefndur leikmaður umferðarinnar af stórblaðinu Voetbal International í dag.
Þetta er í annað skiptið á þremur vikum sem Brynjólfur skorar tvö mörk í einum leik, en hann gerði slíkt hið sama í grannaslag gegn Heerenveen. Þar að auki skoraði hann gegn PSV og er því kominn með fimm mörk í fjórum fyrstu umferðum deildarinnar.
Það er sami árangur og hinn goðsagnakenndi Argentínumaður Mariano Bombarda náði á sínu fyrsta tímabili með Groningen fyrir tæpum þrjátíu árum.
Brynjólfur var í fyrradag valinn í íslenska A-landsliðið fyrir leikina gegn Aserbaísjan og Frakklandi í undankeppni HM.
Mörk Brynjólfs síðasta föstudag: