Sævar Atli Magnússon, framherji Brann í Noregi, er í liði umferðarinnar í norsku úrvalsdeildinni hjá norska fréttamiðlinum NTB eftir góða frammistöðu í 2:2 jafntefli liðsins gegn Kristiansund um síðustu helgi.
Sævar skoraði bæði mörk Brann í leiknum, fyrst af stuttu færi á 67. mínútu og síðan úr vítaspyrnu tveimur mínútum síðar. Hann fékk sjö í einkunn frá NTB fyrir frammistöðuna, en Kristiansund náði að jafna leikinn með tveimur mörkum á lokakaflanum. Mörkin hjá Sævari er að finna hérna.
Sævar er þar með kominn með fjögur mörk í fyrstu fimm deildarleikjum sínum með Brann. Hann er jafnframt í leikmannahóp íslenska A-landsliðsins sem mætir Aserbaídsjan og Frakklandi í undankeppni HM á næstu dögum.