Kristall skoraði í rót­bursti

Kristall Máni og Rúnar Þór voru áberandi í rótbursti Sønderjyske í dönsku bikarkeppninni.
Ljósmynd/Sønderjyske

Sønderjyske tryggði sér sögulegan 10:0 sigur á Raklev í 2. umferð dönsku bikarkeppninnar í kvöld, sem er stærsti sigur félagsins frá upphafi.

Kristall Máni Ingason var heldur betur áberandi í leiknum en hann átti hornspyrnuna sem varð að þriðja marki liðsins þegar samherji hans skallaði boltann í netið og bætti síðar við sjálfur fimmta markinu. Kristall hefur þar með skorað í tveimur leikjum í röð fyrir danska liðið.

Rúnar Þór Sigurgeirsson lék sinn fyrsta leik fyrir Sønderjyske eftir félagaskipti frá Willem II í Hollandi. Hann kom inn á í hálfleik og átti góða stoðsendingu í tíunda og síðasta markinu, sem fullkomnaði stórsigurinn.

Daníel Leó Grétarsson tók ekki þátt í leiknum þar sem hann er í landsliðshópi Íslands sem undirbýr sig fyrir komandi leiki í undankeppni HM gegn Aserbaídsjan og Frakklandi.

Ari skoraði í gær

Ari Leifsson var í byrjunarliði Kolding í sömu umferð bik­ar­keppn­inn­ar í gærkvöld og nýtti það til fulls þegar liðið lagði Skive að velli, 2:0.

Miðvörðurinn opnaði markareikninginn um miðjan fyrri hálfleik með fyrsta marki leiksins og spilaði síðan lykilhlutverk í öflugri frammistöðu liðsins. Annað mark Kolding kom svo skömmu fyrir leikslok og tryggði öruggan sigur.

Fyrri frétt

Sævar Atli í liði umferðarinnar

Næsta frétt

Sædís átti þátt í sigurmarkinu