Ekki er ljóst hvort Stefán Ingi Sigurðarson, framherji Sandefjord, gangi til liðs við sænska stórliðið Djurgården.
Sænskir fjölmiðlar greindu frá því í gær að félögin hefðu átt í viðræðum og að samkomulag væri í höfn, en kaupin ráðast af því hvort Djurgården selur sóknarmanninn August Priske til þýska úrvalsdeildarliðsins RB Salzburg, samkvæmt TV2 í Noregi í dag.
Þar sem sænski félagaskiptaglugginn lokast í kvöld er tíminn naumur. Á sama tíma hafa félög í Hollandi og Póllandi sýnt áhuga á íslenska framherjanum, sem hefur verið meðal markahæstu leikmanna norsku úrvalsdeildarinnar á þessu tímabili.
Sandefjord hefur metið Stefán Inga á um tvær milljónir evra og stjórn félagsins gefið skýrt til kynna að engin nauðsyn sé á að selja leikmanninn.