Fagnaði landsliðsvalinu með marki – Myndband

Daníel Tristan fagnaði landsliðsvalinu með marki þegar Malmö komst áfram í deildarkeppni Evrópudeildarinnar.
Ljósmynd/Sydsvenskan

Daníel Tristan Guðjohnsen skoraði sitt fyrsta mark í Evrópukeppni þegar hann gerði fyrra mark Mamö í 2:0 sigri liðsins á Sigma Olomouc í Tékklandi í gærkvöld. Með sigrinum tryggði sænska liðið sér sæti í deildarkeppni Evrópudeildarinnar, 5:0 samanlagt.

Framherjinn ungi, sem var í fyrradag valinn í A-landsliðið í fyrsta sinn, byrjaði leikinn í byrjunarliði Malmö og skoraði markið á 62. mínútu. Þetta var þriðja mark hans á leiktíðinni.

Daníel Tristan hefur komið við sögu í 22 leikjum í öllum keppnum með Malmö á leiktíðinni, en liðið er í þriðja sæti sænsku úrvalsdeildarinnar þegar níu umferðir eru eftir.

Fyrri frétt

Logi mætir Breiðabliki í Sambandsdeildinni

Næsta frétt

Óvíst hvort Stefán Ingi fari til Djurgården