Brynjólfur Darri Willumsson hefur byrjað tímabilið í hollensku úrvalsdeildinni af miklum krafti. Í kvöld hefur hann þegar skorað tvö mörk í fyrri hálfleik fyrir lið sitt Groningen gegn Heracles, þar sem staðan er 3:0 í leikhléi.
Með þessum mörkum er Brynjólfur kominn með fimm mörk í fyrstu fjórum leikjum liðsins, sem undirstrikar glæsilegt upphaf hans á tímabilinu.
Þrátt fyrir það var hann ekki valinn í landsliðshóp Arnars Gunnlaugssonar fyrir komandi leiki gegn Aserbaídsjan og Frakklandi í undankeppni HM, sem margir furða sig á, meðal annars félagskiptamógúllinn Orri Rafn Sigurðarson.
Fyrra mark Brynjólfs má sjá hér að neðan og það seinna í hlekk fyrir neðan það.