Nóel Atli Arnórsson entist ekki lengi inn á vellinum með liði sínu AaB sem gerði 2:2 jafntefli við Hillerod í dönsku B-deildinni í dag.
Nóel Atli kom inn á sem varamaður á 40. mínútu og fékk svo beint rautt spjald á fyrstu mínútu í seinni hálfleik. AaB er með eitt stig eftir fyrstu tvo leikina í deildinni.
Breki Baldursson var ónotaður varamaður hjá Esbjerg sem hafði betur gegn Hvidovre, 2:1. Esbjerg er með þrjú stig í 6. sæti.