Arnór Sigurðsson var í byrjunarliðið Malmö þegar liðið vann 3:2-útisigur á Brommapojkarna í sænsku úrvalsdeildinni í dag.
Arnór lék fyrstu 62 mínúturnar í leiknum og Daníel Tristan Guðjohnsen kom inn á sem varamaður á 77. mínútu hjá Malmö. Hlynur Karlsson var ekki í leikmannahópi Brommapojkarna.
Með sigrinum færðist Malmö upp í þriðja sæti deildarinnar með 33 stig eftir 18 leiki.
Arnór Ingvi Traustason og Ísak Andri Sigurgeirsson voru báðir í byrjunarliði Norrköping sem gerði markalaust jafntefli við Degerfors. Arnór Ingvi lék allan leikinn en Ísak Andri var tekinn af velli á 85. mínútu og inn á í hans stað kom Jónatan Guðni Arnarsson. Norrköping er í 11. sæti eftir 17 leiki.
Gísli Eyjólfsson kom inn á sem varamaður á 56. mínútu hjá Halmstads í 3:0 tapi gegn GAIS. Róbert Frosti Þorkelsson var ónotaður varamaður hjá GAIS.