Gísli Gottskálk Þórðarson skoraði og lagði upp fyrir Lech Poznan í 4:3 sigri liðsins gegn Lechia Gdansk í pólsku úrvalsdeildnni í kvöld.
Gísli kom inn á 31. mínútu og átti frábæra innkomu en á 48. mínútu minnkaði hann muninn í 2:1 fyrir Lech Poznan með góðu skoti fyrir utan teig en liðið var 2:0 undir í hálfleik.
Á 55. mínútu lagði hann upp jöfnunarmarkið sem Filip Szymczak skoraði. Lech Poznan skoraði síðan tvö mörk til viðbótar í seinni hálfleiknum, áður en Lechia Gdansk minnkaði muninn rétt undir leikslok.
Næsti leikur Lech Poznan er við Breiðablik þegar liðin eigast við í seinni viðureign liðanna í 2. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu á miðvikudaginn kemur. Leikurinn fer fram á Kópavogsvelli, en fyrri leiknum lauk með 7:1 stórsigri Lech Poznan. Gísli Gottskálk er uppalinn hjá Breiðabliki.
Hér að neðan má sjá markið og stoðsendinguna hjá Gísla í kvöld.