Jónatan þreytti frumraun sína í sænsku úrvalsdeildinni

Jónatan Guðni lék sinn fyrsta leik í sænsku úr­vals­deild­inni í gær­.
Ljósmynd/Norrköping

Jónatan Guðni Arnarsson, leikmaður sænska liðsins Norrköping, lék sinn fyrsta leik í sænsku úr­vals­deild­inni í gær­.

Jónatan Guðni kom inn á fyrir Ísak Andra Sigurgeirsson á 85. mínútu í markalausu jafntefli Norrköping gegn Degerfors.

Jónatan Guðni, sem er 18 ára, gerði fjög­urra ára samn­ing við Norr­köp­ing fyrr á þessu ári en hann kom frá uppeldisfélagi sínu Fjölni. Hann hefur leikið 9 leiki fyrir yngri landslið Íslands.

Fyrri frétt

Frábær innkoma Gísla – Myndband

Næsta frétt

Mikael fiskaði mótherja af velli – Myndband