Lyngby trónir á toppnum

Ísak Snær og samherjar hans í Lyngby eru í efsta sæti dönsku B-deildarinnar.
Ljósmynd/Lyngby

Ísak Snær Þorvaldsson og samherjar hans í Lyngby eru í efsta sæti dönsku B-deildarinnar eftir 2:1-heimasigur á AaB í dag.

Ísak byrjaði leikinn á varamannabekknum en var skipt inn á eftir 69 mínútur. Lyngby hefur nú unnið þrjá deildarleiki í röð og er með 21 stig, einu stigi meira en næsta lið, eftir 11 umferðir. Nóel Atli Arnórsson lék fyrstu 87 mínútunar í leiknum fyrir AaB, sem er í 7. sæti af 12 liðum.

Guðlaugur Victor Pálsson var í miðri vörninni hjá Horsens og lék allan leikinn þegar liðið tapaði 2:1 fyrir Hillerod. Horsens er í 4. sæti dönsku B-deildarinnar.

Arnór Ingvi Traustason og Ísak Andri Sigurgeirsson léku báðir allan leikinn fyrir Norrköping sem tapaði 2:0 fyrir Hacken í sænsku úrvalsdeildinni. Norrköping er í 11. sæti þegar fimm umferðir eru eftir. Júlíus Magnússon lék allan leikinn fyrir Elfsborg sem tapaði 2:1 fyrir Degerfors. Ari Sigurpálsson kom inn á sem varamaður hjá Elfsborg eftir klukkutíma leik. Ekki hefur gengið nógu vel hjá Elfsborg að undanförnu en liðið, sem er í 8. sæti, hefur aðeins náð í eitt stig í síðustu fimm deildarleikjum.

Logi Tómasson var á sínum stað í byrjunarliði Samsunspor sem gerði 2:2 jafntefli við Gaziantep í tyrknesku úrvalsdeildinni. Samsunspor er í 5. sæti eftir sjö umferðir.

Logi Hrafn Róbertsson lék síðasta stundarfjórðunginn fyrir NK Istra sem gerði markalaust jafntefli við Rijeka í úrvalsdeildinni í Króatíu. Danijel Dejan Djuric var ónotaður varamaður hjá IK Istra, sem er í 7. sæti af 10 liðum eftir átta umferðir.

Fyrri frétt

Sneri til baka í stórsigri Grimsby

Næsta frétt

Stór­kost­leg auka­spyrna Sveins Arons – Sjáðu markið