Sneri til baka í stórsigri Grimsby

Jason Daði sneri aftur til leiks með Grimsby Town í stórsigri liðsins.
Ljósmynd/Grimsby

Jason Daði Svanþórsson sneri aftur til leiks með Grimsby Town í dag þegar liðið vann stórsigur á Cheltenham, 7:1, á heimavelli í ensku D-deildinni.

Grimsby lék tveimur mönnum fleiri mestan hluta síðari hálfleiks eftir að Cheltenham fékk tvö rauð spjöld. Eftir það opnuðust flóðgáttirnar og heimamenn skoruðu fimm mörk í seinni hálfleiknum.

Jason Daði, sem hafði misst af byrjun tímabilsins vegna meiðsla, kom inn á sem varamaður á 67. mínútu og lék sinn fyrsta leik á tímabilinu. Eftir 10 umferðir situr Grimsby í 5. sæti deildarinnar og er í baráttunni um efstu sætin.

Stefán Teitur Þórðarson lék síðustu mínútunar fyrir Preston sem gerði markalaust jafntefli við Bristol City í ensku B-deildinni. Andri Lucas Guðjohnsen lék síðasta hálftímann fyrir Blackburn í sömu deild þegar liðið tapaði 3:0 fyrir Charlton. Preston er í 6. sæti á meðan Blackburn er í 20. sæti.

Benoný Breki Andrésson var í byrjunarliði Stockport og lék í 78 mínútur þegar liðið gerði 1:1 jafntefli við Reading í ensku C-deildinni. Stockport er í 7. sæti.

Þá lék Tómas Bent Magnússon síðustu mínútunar fyrir Hearts sem vann 3:0 sigur á Falkirk í skosku úrvalsdeildinni. Hearts er á toppi deildarinnar eftir sex umferðir.

Fyrri frétt

Bjarki með stoðsendingu og bestur á vellinum

Næsta frétt

Lyngby trónir á toppnum