Stór­kost­leg auka­spyrna Sveins Arons – Sjáðu markið

Sveinn Aron skoraði glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu í dramatísku jafntefli í Noregi.
Ljósmynd/Sarpsborg

Sveinn Aron Guðjohnsen minnti á sig í norsku úrvalsdeildinni í dag þegar hann skoraði glæsilegt mark fyrir Sarpsborg í 3:3-jafntefli liðsins við Viking.

Sveinn hóf leikinn á varamannabekknum en kom inn á 57. mínútu. Hann minnkaði muninn fyrir Sarpsborg í 2:3 með glæsi­legu marki beint úr auka­spyrnu í efra hægra hornið, rétt áður en liðsfélagi hans jafnaði metin með dramatísku marki þegar tíu mínútur voru liðnar í uppbótartíma. Hilmir Rafn Mikaelsson var ónotaður varamaður hjá Viking í leiknum. Markið hjá Sveini Aroni má sjá á vef TV2 í Noregi.

Þetta var þriðja deildarmark Sveins á leiktíðinni en hann hafði síðast skorað í sjöttu umferð í vor. Sarpsborg er í 9. sæti deildarinnar eftir 23 umferðir.

Í dönsku úrvalsdeildinni voru þrír Íslendingar í byrjunarliðinu hjá Sønderjyske sem tapaði 1:2 á heimavelli gegn FC Kaupmannahöfn. Daníel Leó Grétarsson lék fyrstu 78 mínútunar, Kristall Máni Ingason í 66 mínútur en Rúnar Þór Sigurgeirsson þurfti að fara af velli vegna meiðsla eftir aðeins níu mínútur.

Hinn ungi og efnilegi Viktor Bjarki Daðason var á varamannabekknum hjá FC Kaupmannahöfn, sem trónir á toppnum með 20 stig, á meðan Sønderjyske er í 8. sæti með 11 stig eftir tíu umferðir.

Fyrri frétt

Lyngby trónir á toppnum

Næsta frétt

Uppgjör dagsins